Hver erum við?

Lítið fyrirtæki - löng saga

Helluskeifur hefur starfað óslitið frá árinu 1989 en saga þess er nokkuð lengri. Árið 1975 keypti  Jónas Guðmundsson á Hellu á Rangárvöllum vélar, sem notaðar höfðu verið við smíði skeifna í Kópavogi, og setti á fót Skeifnaverksmiðjuna á Hellu, sem síðar fékk nafnið Helluskeifur og var það eini staðurinn á landinu þar sem skeifur voru vélsmíðaðar. Árið 2008 fluttu Helluskeifur í Stykkishólm með nýjum eigendum, sem starfræktu það til ársins 2015. Núverandi eigendur, hjónin Rúnar B. Jóhannsson og Sesselja Guðmundsdóttir, starfrækja Helluskeifur á Skagaströnd.

Mamma og pabbi

Topp þjónusta í tugi ára

Við leitumst við að koma pöntunum til viðskiptavina á sem hagstæðustum kjörum og framleiðum eftir þörfum viðskiptavina.

 

Erum ávalt reiðubúin til að skoða alla sérsmíði og gerum okkar besta til að koma til móts við þarfir viðskiptavina

 

Talað í tölum

  • Framleiðum 300 skeifur á klukkustund

  • Framleiðum 42 gerðir/stærðir

  • Starfsfólkið telur þó aðeins 2 einstaklinga